Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu í vikunni jókst umtalsvert á milli vikna í vikunni eftir sáralitla veltu í vikunni á undan.

Þannig nam veltan í vikunni 2.039 milljónum króna samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands, samanborið við 860 milljónir króna veltu í vikunni á undan og jókst um 137% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta hækkaði nokkuð við þessa miklu veltu í vikunni og er nú 1.443 milljónir króna. Þetta er í fyrsta sinn í fjórar vikur sem fjögurra vikna meðalvelta hækkar en hún hefur engu að síður lækkað um rúmar 280 milljónir króna fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú aukist um 43% á milli ára en hafði á sama tíma í fyrra hækkað um 20% á milli ára.

Tólf vikna meðalvelta dróst saman um 24 milljónir króna á milli vikna í vikunni og nemur nú 1.676 milljónum króna. Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.608 milljónir króna á viku og hefur aukist um 17% á milli ára.

Í síðustu viku:

Alls var 70 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 29 samninga í vikunni á undan. Alls var 56 samningum þinglýst að meðaltali á viku á síðasta ári þannig að nýliðin vika er nokkuð undir meðallagi, en 49 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning nam 29 milljónum króna í vikunni, samanborið við 29,7 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 28,2 milljónir króna.

Meðaltal síðustu 12 vikna er 27,9 milljónir króna á hvern samning.