Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu á milli jóla og nýárs var með lægsta móti þó vikan hafi ekki verið sú veltuminnsta á árinu.

Þannig nam veltan í vikunni 976 milljónum króna samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands, samanborið við 1.933 milljónir króna veltu í vikunni á undan og dróst því saman um 50% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta var í lok árs 1.990 milljónir króna og en hefur þó hækkað um 140 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur lækkað um 13% á milli ára.

Tólf vikna meðalvelta dróst saman um 106 milljónir króna í vikunni fyrir áramót og nam í lok árs 1.823 milljónum króna. Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún var í lok árs 1.574 milljónir króna á viku og hefur aukist um 16% á milli ára.

Í síðustu viku:

Alls var 43 kaupsamningum þinglýst í vikunni fyrir áramót, samanborið við 79 samninga í vikunni á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali árið 2009 en 56 samningum að meðaltali á viku á nýliðnu ári.

Meðalupphæð á hvern samning nam 22,7 milljónum króna í vikunni fyrir áramót, samanborið við 24,5 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning árið 2009 var 34,6 milljónir króna en 28,2 milljónir króna á nýliðnu ári.

Meðaltal síðustu 12 vikna er um 27 milljónir króna.