Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst lítillega saman í vikunni, en er þó nokkuð yfir meðaltali þessa árs.

Þannig nam veltan í vikunni 2.408 milljónum króna samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands, samanborið við 2.640 milljónir króna veltu í síðustu viku og dróst því saman um 9% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta jókst þó í vikunni og fer nú í fyrsta sinn í 8 vikur yfir 2 milljarða. Þannig nam fjögurra vikna meðalvelta í lok vikunnar 2.419 milljónum króna og hefur þannig hækkað um 337 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur lækkað um 36% á milli ára, en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta aukist um 195% á milli ára. Á sama tíma í fyrra voru þó miklar og óvenjulegar sviptingar á markaði.

Tólf vikna meðalvelta dróst þó saman um 3 milljónir króna í vikunni og nemur nú 1.964 milljónum króna. Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.562 milljónir króna á viku og hefur aukist um 17% á milli ára.

Í síðustu viku:

Alls var 68 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 80 samninga í vikunni á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 56 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning hækkaði í vikunni og nam 35,4 milljónum króna, samanborið við 32,6 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 28,4 milljónum króna og hefur því lækkað nokkuð.

Meðaltal síðustu 12 vikna er 27,7 milljónir króna.