Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst saman í vikunni, eða um 26% milli vikna en hafði í vikunni á undan aukist um 21% á milli vikna.
Þannig nam veltan í vikunni 1.197 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands en í vikunni á undan nam veltan 1.625 milljónum króna.
Fjögurra vikna meðalvelta stendur nánast í stað á milli vikna, hækkar um eina milljón króna en hafði lækkaði þrjár síðustu vikurnar þar á undan. Þannig nemur fjögurra vikna meðalvelta nú 1.1330 milljónum króna og hefur lækkað um 55 milljónir króna á fjórum vikum. Mest hefur fjögurra vikna meðalvelta verið tæplega 1.600 milljónir á þessu ári en það var um miðjan maí.
Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú hækkað um 2% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 78% milli ára.
Þetta er í annað skipti á þessu ári sem fjögurra vikna meðalvelta hækkar á milli ára um miðjan maí hafði hún hækkað um 1% eins og sést á myndinni.
Tólf vikna meðalvelta lækkar þó á milli vikna, í fyrsta skipti í 15 vikur, um 8 milljónir króna og nemur 1.191 milljónum króna. Tólf vikna meðalvelta hefur dregist saman um 33% milli ára en hafði á sama tíma í fyrra dregist saman um 69% milli ára.
Ársbreyting á vikuveltu hefur aukist um 27%. Rétt er þó að hafa í huga að velta á fasteignamarkaði getur sveiflast nokkuð milli vikna og því er réttara að skoða fleiri vikur saman líkt og gert er hér að ofan.
Til gamans má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er í dag 1.165 milljónir króna, og hefur lækkað jafnt og þétt s.l. 39 vikur, samanborið við 2.538 milljónir króna á sama tíma í fyrra og hefur því lækkað um 54% milli ára.
Í þessari viku:
Alls var 47 kaupsamningum þinglýst í vikunni en 50 samningum var þinglýst í síðustu viku. Alls hefur 38 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku á þessu ári.
Meðalupphæð á hvern samning lækkar á milli vikna og nemur nú 25,5 milljónum króna, samanborið við 31,9 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú 31,9 milljónir króna.