Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu stóð svo að segja í stað á milli vikna í liðinni viku. Þannig nam velta í vikunni 1.596 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands, samanborið við 1.559 milljóna króna veltu í vikunni á undan og jókst því um 2% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta lækkar þó nokkuð á milli vikna, eftir að hafa hækkað átta vikur í röð, og nemur nú 1.416 milljónum króna, samanborið við 1.535 milljónir í vikunni á undan. Þá hefur fjögurra vikna meðalvelta aðeins hækkað um 10 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú hækkað um 27% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 69% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta lækkar einnig töluvert á milli vikna, eða um 250 milljónir króna, og nemur 1.272 milljónum króna. Tólf vikna meðalvelta hefur nú ekki verið lægri frá því um miðjan nóvember sl. en um miðjan desember hafði 12 vikna meðalvelta ekki verið hærri í 12 mánuði þegar hún nam 2.055 milljónum króna.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er nú 1.419 milljónir króna. Fyrir ári síðan nam 12 mánaða meðalveltan 1.704 milljónum króna og hefur því dregist saman um 17% á milli ára. Þá má geta þess að um miðjan janúar í fyrra fór 12 mánaða meðalvelta í fyrsta skipti undir 2 milljarða frá því febrúar 2003.

Í síðustu viku:

Alls var 52 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 50 samninga í vikunni þar á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári og 43 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning stendur nánast í stað á milli vikna og nam í vikunni 30,7 milljónum króna, samanborið við 30,6 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 31,2  milljónum króna.