Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst lítillega á milli vikna í þessari viku. Þannig nam veltan í vikunni 1.300 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands, samanborið við 1.269 milljónir króna veltu í vikunni á undan og jókst því um 2% á milli vikna.

Rétt er þó að taka fram á síðustu tvær vikur á undan hafði veltan dregist nokkuð saman á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta lækkar nokkuð á milli vikna, aðra vikuna í röð, og nemur nú 1.483 milljónum króna, samanborið við 1.529 milljónir í vikunni á undan. Þá hefur fjögurra vikna meðalvelta  lækkað um 100 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur hækkað um 52% á milli ára, en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 49% milli ára en vetla á fasteignamarkaði var frekar lítil um þetta leyti í fyrra.

Tólf vikna meðalvelta lækkar lítillega á milli vikna eða um 5 milljónir króna, og nemur nú 1.414 milljónum króna.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.500 milljónir króna á viku. Fyrir ári síðan nam 12 mánaða meðalveltan 1.362 milljónum króna og hefur því aukist um 10% á milli ára. Þá má geta þess að um miðjan janúar í fyrra fór 12 mánaða meðalvelta í fyrsta skipti undir 2 milljarða frá því febrúar 2003.

Í síðustu viku:

Alls var 42 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 40 samninga í vikunni á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 48 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning lækkar á milli vikna og nam í vikunni 30,9 milljónum króna, samanborið við 31,7 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 28,5  milljónum króna og hefur því lækkað nokkuð.

Meðalupphæð á hvern samning hefur verið að þokast upp á við síðustu vikur. Í byrjun mars var meðalverð á hvern samning um 30,7 milljónir króna en lækkaði þá niður í 26,5 um miðjan mars. Síðan þá hefur það að mestu þokast upp á við og hefur nú hækkað fjórar vikur í röð.