Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst nokkuð í vikunni, eða um 17% milli vikna en hafði í vikunni á undan dregist saman um 4% á milli vikna.

Þannig nam veltan í vikunni 1.346 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands en í vikunni á undan nam veltan 1.150 milljónum króna.

Fjögurra vikna meðalvelta lækkar þó milli vikna, aðra vikuna í röð. Þannig nemur fjögurra vikna meðalvelta nú 1.333 milljónum króna og lækkar um rúmar 50 milljónir á milli vikna en fyrir tveimur vikum nam fjögurra vikna meðalvelta tæpum 1.500 milljónum króna. Mest hefur fjögurra vikna meðalvelta verið tæplega 1.600 milljónir á þessu ári en það var um miðjan maí.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú lækkað um 25% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 71% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta hækkar þó enn á milli vikna, þrettándu vikuna í röð, nú um 43 milljónir króna, og nemur 1.335 milljónum króna. Tólf vikna meðalvelta hefur þó dregist saman um 40% milli ára en hafði á sama tíma í fyrra dregist saman um 66% milli ára.

Ársbreyting á vikuveltu hefur dregist saman 6%. Rétt er þó að hafa í huga að velta á fasteignamarkaði getur sveiflast nokkuð milli vikna og því er réttara að skoða fleiri vikur saman líkt og gert er hér að ofan.

Til gamans má þó skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er í dag 1.152 milljónir króna, og hefur lækkað jafnt og þétt s.l. 27 vikur, samanborið við 2.729 milljónir króna á sama tíma í fyrra og hefur því lækkað um 58% milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 45 kaupsamningum þinglýst í vikunni sem er svipað og í síðustu viku þegar 40 samningum var þinglýst. Alls hefur 38 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku á þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning hækkar á milli vikna og nemur nú 29,9 milljónum króna, samanborið við 28 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú 32,1 milljón króna.