Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst nokkuð á milli vikna í liðinni. Þannig nam velta í vikunni 1.559 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands, samanborið við 1.117 milljóna króna veltu í vikunni á undan og jókst því saman um 40% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta hækkar á milli vikna, áttundu vikuna í röð, og nemur nú 1.535 milljónum króna, samanborið við 1.453 milljónir í vikunni á undan. Þá hefur fjögurra vikna meðalvelta hækkað um rúmar 180 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú hækkað um 40% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 70% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta lækkar þó á milli vikna, eða um tæpar 60 milljónir króna, og nemur 1.522 milljónum króna. Tólf vikna meðalvelta hefur nú ekki verið lægri frá því um miðjan nóvember sl. en um miðjan desember hafði 12 vikna meðalvelta ekki verið hærri í 12 mánuði þegar hún nam 2.055 milljónum króna.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er nú 1.412 milljónir króna. Fyrir ári síðan nam 12 mánaða meðalveltan 1.738 milljónum króna og hefur því dregist saman um 19% á milli ára. Þá má geta þess að um miðjan janúar í fyrra fór 12 mánaða meðalvelta í fyrsta skipti undir 2 milljarða frá því febrúar 2003.

Í síðustu viku:

Alls var 50 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 45 samninga í vikunni þar á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári og 42 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning hækkar einnig á milli vikna og nam í vikunni 30,6 milljónum króna, samanborið við 24,8 milljónir króna í vikunni á undan sem er nokkuð undir meðaltali. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 31,3 milljónum króna.