Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst nokkuð á milli vikna í vikunni, aðra vikuna í röð. Vikuveltan hefur nú ekki verið lægri síðan um miðjan júní.

Þannig nam veltan í vikunni 1.211 milljónum króna samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands, samanborið við 1.629 milljónir króna veltu í síðustu viku og dróst því saman um 26% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta lækkaði einnig nokkuð í þessari viku og hefur ekki verið lægri frá því í lok ágúst. Þannig nemur fjögurra vikna meðalvelta í síðustu viku 1.639 milljónum króna og hefur lækkað um 233 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur hækkað um 23% á milli ára, en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta hækkað um 2% á milli ára.

Tólf vikna meðalvelta dróst  lítillega saman á milli vikna í vikunni eða um 4 milljónir króna, og nemur nú 1.962 milljónum króna. Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.653 milljónir króna á viku og hefur aukist um 42% á milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 49 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 67 samninga í síðustu viku. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 55 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning breyttist lítið á milli vikna í vikunni og nam 24,7 milljónum króna, samanborið við 24,3 milljónir króna í síðustu viku. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 28,4 milljónum króna og hefur því lækkað nokkuð.

Meðaltal síðustu 12 vikna er um 27 milljónir króna.