Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst lítillega saman á milli vikna í vikunni en síðasta vika var sú veltumesta á þessu ári.

Þannig nam veltan nú í vikunni 2.357 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands, samanborið við 2.440 milljónir króna veltu í síðustu viku og dróst því saman um 3% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta jókst þó nokkuð á milli og hefur aldrei verið hærri frá því í lok síðasta ár (þegar velta á markaði hafði reyndar verið óvenju mikil í desember á síðasta ári). Þannig nemur fjögurra vikna meðalvelta nú 2.284 milljónum króna, samanborið við 2.143 milljónir í vikunni á undan.

Fjögurra vikna meðalvelta  hefur nú hækkað um 433 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur hækkað um 66% á milli ára, en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta dregist saman um 47% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta jókst á milli vikna í síðustu viku eða um 64 milljónir króna, og nemur nú 1.804 milljónum króna. Þá hefur 12 vikna meðalvelta ekki verið hærri frá því í byrjun febrúar sl.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.597 milljónir króna á viku og hefur aukist um 33% á milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 85 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 70 samninga í vikunni á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 52 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári þannig að fjöldi samninga síðustu vikur er töluvert yfir meðaltali.

Meðalupphæð á hvern samning lækkaði nokkuð á milli vikna í þessari viku og nemur nú 27,7 milljónum króna, samanborið við 34,4 milljónir króna í síðustu viku. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 28,8 milljónum króna og hefur því lækkað nokkuð.