Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst nokkuð saman á milli vikna í síðustu viku en rétt er að geta þess að í vikunni á undan var veltan óvenju mikil þar sem meðalupphæð á hvern samning var nokkuð yfir meðallagi.

Þannig nam velta í síðustu viku 1.390 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands, samanborið við 2.073 milljóna króna veltu í vikunni á undan og dróst því saman um 33% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta hækkar þó á milli vikna og nemur nú 1.406 milljónum króna, samanborið við 1.353 milljónir í vikunni á undan. Þá hefur fjögurra vikna meðalvelta hækkað um tæpar 400 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú hækkað um 47% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 70% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta lækkar þó töluvert á milli vikna, eða um rúmar 300 milljónir króna, og nemur 1.648 milljónum króna. Tólf vikna meðalvelta hefur nú ekki verið lægri frá því um miðjan nóvember sl. en um miðjan desember hafði 12 vikna meðalvelta ekki verið hærri í 12 mánuði þegar hún nam 2.055 milljónum króna.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er nú 1.409 milljónir króna. Fyrir ári síðan nam 12 mánaða meðalveltan 1.833 milljónum króna og hefur því dregist saman um 23% á milli ára. Þá má til gamans geta þess að um miðjan janúar í fyrra fór 12 mánaða meðalvelta í fyrsta skipti undir 2 milljarða frá því febrúar 2003.

Í síðustu viku:

Alls var 57 kaupsamningum þinglýst í vikunni, sem er nokkuð yfir meðaltali, samanborið við 35 samninga í vikunni þar á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári og 40 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Hins vegar lækkaði meðalupphæð á hvern samning nokkuð á milli vikna í síðustu viku. Meðalupphæð samninga í síðustu viku var 24,4 milljónir króna, samanborið við 59,2 milljónir króna í vikunni á undan sem er töluvert yfir meðaltali. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 32,3 milljónum króna.