Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst nokkuð á milli vikna í síðustu viku og nam 2.073 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands, samanborið við 1.232 milljóna króna veltu í vikunni á undan og jókst hún því um 68% á milli vikna.

Helst má rekja veltuaukninguna til hárrar meðalupphæðar á hvern samning en fjöldi samninga var í meðallagi.

Fjögurra vikna meðalvelta hækkar með þessu töluvert á milli vikna og nam í síðustu viku 1.353 milljónum króna, samanborið við 1.016 milljónir króna í vikunni á  undan. Þá hefur fjögurra vikna meðalvelta hækkað um tæpar 390 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú hækkað um 29% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 66% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta hækkar einnig á milli vikna og nemur nú  1.914 milljón króna. Um miðjan desember hafði 12 vikna meðalvelta ekki verið hærri í 12 mánuði þegar hún nam 2.055 milljónum króna.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er nú 1.396 milljónir króna. Fyrir ári síðan nam 12 mánaða meðalveltan 1.892 milljónum króna og hefur því dregist saman um 26% á milli ára. Þá má til gamans geta þess að um miðjan janúar í fyrra fór 12 mánaða meðalvelta í fyrsta skipti undir 2 milljarða frá því febrúar 2003.

Í þessari viku:

Alls var 35 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 48 samninga í vikunni þar á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári og 37 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Hins vegar nam meðalupphæð á hvern samning í síðustu viku 59,2 milljónum króna, sem er töluvert yfir meðaltali, samanborið við 25,7 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 33,6 milljónum króna.