Velta á fasteignamarkaði jókst verulega á milli vikna eða um 135% en hafði í vikunni á undan dregist saman um 25% milli vikna samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Í vikunni sem leið var velta á fasteignmarkaði um 2,2 milljarðar en var í fyrri viku rétt tæplega milljarður og hafði ekki verið lægri í um fjögur og hálft ár.

Vikuna þar áður var veltan tæplega 1,3 milljarðar sem einnig var nokkuð undir meðaltali en meðalvelta á viku frá áramótum er tæplega 2,4 milljarðar.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 69% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið voru 62 en í fyrri viku voru 33 samningum þinglýst en þinglýstir samningar eru að meðaltali 71 á viku frá áramótum.

Meðalvelta á hvern samning í vikunni var 37 milljónir króna sem er nokkur aukning á hvern samning frá fyrri viku þegar meðalveltan var tæpar 30 milljónir á hvern samning. Meðaltal á hvern samning frá áramótum er 33 milljónir króna.