Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst lítillega saman í vikunni, eða um 4% milli vikna en hafði í vikunni á undan dregist saman um 27% á milli vikna.

Þannig nam veltan í vikunni 1.151 milljón króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands en í vikunni á undan nam veltan 1.195 milljónum króna.

Fjögurra vikna meðalvelta lækkar nú í fyrsta skipti í fimm vikur. Þannig nemur fjögurra vikna meðalvelta nú 1.385 milljónum króna og lækkar um rúmar 100 milljónir á milli vikna en mest hefur fjögurra vikna meðalvelta verið tæpir 1,6 milljarðar á þessu ári en það var um miðjan maí.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú lækkað um 29% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 70% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta hækkar þó enn á milli vikna, elleftu vikuna í röð, nú um 23 milljónir króna, og nemur 1.292 milljónum króna. Tólf vikna meðalvelta hefur þó dregist saman um 43% milli ára en hafði á sama tíma í fyrra dregist saman um 66% milli ára.

Ársbreyting á vikuveltu hefur dregist saman 29%. Rétt er þó að hafa í huga að velta á fasteignamarkaði getur sveiflast nokkuð milli vikna og því er réttara að skoða fleiri vikur saman líkt og gert er hér að ofan.

Til gamans má þó skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er í dag 1.154 milljónir króna, og hefur lækkað jafnt og þétt s.l. 26 vikur, samanborið við 2.808 milljónir króna á sama tíma í fyrra og hefur því lækkað um 59% milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 41 kaupsamningi þinglýst í vikunni sem er svipað og í síðustu viku þegar 40 samningum var þinglýst. Alls hefur 37 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku á þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning lækkar lítillega milli vikna og nemur nú 28 milljónum króna, samanborið við 29,9 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú 32,1 milljón króna.