Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu í fyrstu viku þessa árs var nokkuð í meðallagi eftir litla veltu milli jóla og nýárs.

Þannig nam veltan í vikunni 1.584 milljónum króna samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands, samanborið við 976 milljónir króna veltu í vikunni á undan og jókst því um 62% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta var er nú 1.725 milljónir króna og hefur lækkað fjórar vikur í röð um rúmar 420 milljónir króna.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur lækkað um 14% á milli ára.

Tólf vikna meðalvelta dróst saman um 42 milljónir króna í vikunni og nemur nú 1.780 milljónum króna. Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.580 milljónir króna á viku og hefur aukist um 16% á milli ára.

Í síðustu viku:

Alls var 51 kaupsamning þinglýst í vikunni, samanborið við 42 samninga í vikunni á undan. Alls var 56 samningum þinglýst að meðaltali á viku á síðasta ári.

Meðalupphæð á hvern samning nam 30 milljónum króna í vikunni, samanborið við 22,7 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 28,2 milljónir króna.

Meðaltal síðustu 12 vikna er 27,3 milljónir króna.