Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst verulega saman á milli vikna í vikunni, en rétt er að hafa í huga að veltan í vikunni á undan var óvenju há. Þannig nam veltan í vikunni 1.262 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands, samanborið við 2.040 milljónir króna veltu í vikunni á undan og dróst því saman um 38% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta dregst á milli vikna, þrátt fyrir mikla veltu í síðustu viku, og nemur nú 1.468 milljónum króna, samanborið við 1.509 milljónir í vikunni á undan. Fjögurra vikna meðalvelta  hefur nú lækkað um 60 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur hækkað um 52% á milli ára, en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 50% milli ára en velta á fasteignamarkaði var frekar lítil um þetta leyti í fyrra.

Tólf vikna meðalvelta dregst einni saman á milli vikna í þessari viku eða um 5 milljónir króna, og nemur nú 1.456 milljónum króna.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.522 milljónir króna á viku. Fyrir ári síðan nam 12 mánaða meðalveltan 1.322 milljónum króna og hefur því aukist um 15% á milli ára. Þá má geta þess að um miðjan janúar í fyrra fór 12 mánaða meðalvelta í fyrsta skipti undir 2 milljarða frá því febrúar 2003.

Í þessari viku:

Alls var 55 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 47 samninga í vikunni á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 49 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning lækkar þó töluvert á milli vikna og nam í vikunni 22,9 milljónum króna, samanborið við 43,4 milljónir króna í vikunni á undan sem er óvenju hátt. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 28,8 milljónum króna og hefur því lækkað nokkuð.