Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst lítillega saman á milli vikna í nýliðinni viku. Þannig nam veltan í vikunni 1.054 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands, samanborið við 1.02 milljóna króna veltu í vikunni á undan og dróst því saman um 4% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta lækkar á milli vikna, þriðju vikuna í röð, og nemur nú 1.257 milljónum króna, samanborið við 1.1332 milljónir í vikunni á undan. Fjögurra vikna meðalvelta hefur nú lækkað um 260 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú lækkað um 3% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 40% milli ára. Í síðustu viku lækkaði fjögurra vikna meðalvelta í fyrsta sinn á milli ára síðan í byrjun nóvember sl.   Tólf vikna meðalvelta lækkar einnig á milli vikna, eða um 10 milljónir króna, og nemur 1.356 milljónum króna.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.420 milljónir króna á viku. Fyrir ári síðan nam 12 mánaða meðalveltan 1.620 milljónum króna og hefur því dregist saman um 12% á milli ára. Þá má geta þess að um miðjan janúar í fyrra fór 12 mánaða meðalvelta í fyrsta skipti undir 2 milljarða frá því febrúar 2003.

Í síðustu viku:

Alls var 44 kaupsamningum þinglýst í vikunni, líkt og í vikunni á undan og þar á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 45 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning lækkar þó á milli vikna, aðra vikuna í röð, og nam í vikunni 23,9 milljónum króna, samanborið við 25 milljónum króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 29,7  milljónum króna.