Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið var aðeins 685 milljónir króna og dróst saman um 38% milli vikna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Velta á fasteignamarkaði var í vikunni þar á undan um 1,1 milljarður króna en meðalvelta frá áramótum er tæpar 2,2 milljarðar.

Þá hefur velta á fasteignamarkaði ekki verið jafn lítil á einni viku í það minnsta fimm ár (ef undan er skilin vikan milli jóla og nýárs árið 2003).

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 27 í vikunni sem leið en 40 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali hefur 68 samningum verið þinglýst á viku frá áramótum.

Meðalupphæð á hvern samning var í vikunni 25,4 milljónir króna og minnkar um rúmar tvær milljónir milli vikna. Meðalvelta á hvern samning frá áramótum eru 32 milljón krónur.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 85% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.