Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst lítillega í vikunni og nam um 780 milljónum króna. Veltan eykst því um 46% milli vikna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá ríkisins (áður Fasteignamat ríkisins) en rétt er að hafa í huga að veltan var ekki nema um 530 milljónir vikuna áður sem er nokkuð vel undir meðallagi.

Meðalvelta á viku á síðasta ári var rúmir 2,1 milljarðar. Þó er meðalvelta síðustu fjórar vikur aðeins um 635 milljónir en lítil hreyfing hefur verið á fasteignamarkaði í desember og fyrstu vikur þessa árs.

Til merkis um það er meðalvelta síðustu 12 vikna um 950 milljónir en þetta er í fyrsta skipti í hartnær áratug sem 12 vikna meðalvelta fer undir milljarð króna.

Á myndinni hér að ofan má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára sem hefur minnkað um 75% milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 25 í vikunni sem leið en 21 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali var 66 samningum þinglýst á viku á síðasta ári en síðustu fjórar vikur hefur 24 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku.

Meðalupphæð á hvern samning var í vikunni 31,2 milljónir króna og hækkar um tæpar sex milljónir milli vikna. Þetta er þó nær meðaltali meðaltali en meðalupphæð á hvern samning frá síðustu áramótum eru tæpar 32 milljón krónur en hefur verið um 26 milljónir síðustu fjórar vikur.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 68% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.