Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst nokkuð á milli vikna í vikunni eftir að hafa aukist nokkuð í síðustu viku. Rétt er þó að hafa í huga að í síðustu viku var veltan óvenju há eftir að hafa dregist saman í fimm vikur þar á undan.

Þannig nam veltan í síðustu viku 1.629 milljónum króna samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands, samanborið við 2.325 milljónir króna veltu í síðustu viku og dróst því saman um 30% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta lækkaði einnig nokkuð í þessari viku. Þannig nemur fjögurra vikna meðalvelta í síðustu viku 1.767 milljónum króna, samanborið við 1.883 milljónir í vikunni á undan.

Fjögurra vikna meðalvelta  hefur nú lækkað um 337 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur hækkað um 33% á milli ára, en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta dregist saman um 11% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta dróst  lítillega saman á milli vikna í vikunni eða um 34 milljónir króna, og nemur nú 1.966 milljónum króna. Tólf vikna meðalvelta hefur frá því í lok síðasta árs verið undir 2 milljörðum króna.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.653 milljónir króna á viku og hefur aukist um 42% á milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 67 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 86 samninga í síðustu viku. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 55 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning lækkaði á milli vikna í vikunni og nam 24,3 milljónum króna, samanborið við 27 milljónir króna í síðustu viku. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 28,5 milljónum króna og hefur því lækkað nokkuð.

Meðaltal síðustu 12 vikna er þó 27 milljónir króna.