Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu í vikunni dróst verulega saman milli vikna eða um 37% og nam alls 711 milljónum króna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands (áður Fasteignamat ríkisins).

Veltan í vikunni þar á undan nam rúmum 1,1 milljarði króna en vikuveltan á fasteignamarkaði hefur aðeins tvisvar farið yfir milljarð síðustu tíu vikur.

Meðalvelta á viku á síðasta ári var rúmir 2,1 milljarðar. Þá er meðalvelta síðustu fjórar vikur um 950 milljónir en meðalvelta frá áramótum er um 870 milljónir á viku.

Um miðjan janúar fór 12 vikna meðalvelta undir milljarð króna í fyrsta skipti í tæpan áratug og nú er 12 vikna meðalvelta um 890 milljónir króna.

Á myndinni hér að ofan má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára sem hefur minnkað um 70% milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 29 í vikunni en 39 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali var 66 samningum þinglýst á viku á síðasta ári en frá áramótum hefur 30 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku.

Meðalupphæð á hvern samning var í vikunni 24,5 milljónir króna og lækkar um tæpar 4,5 milljónir milli vikna. Það er undir meðaltali en meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári voru tæpar 32 milljón krónur en hefur verið 28,7 milljónir frá áramótum.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 81% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.