Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst lítillega saman í vikunni, eða um 17% milli vikna, en hafði í vikunni á undan aukist um 16% milli vikna.

Þannig nam veltan í vikunni tæpum 1.240 milljónum króna samkvæmt gögnum frá Fasteignaskrá Íslands. Í vikunni á undan nam veltan tæpum 1,5 milljarði króna og hafði þá ekki verið meiri frá því í byrjun júlí.

Fjögurra vikna meðalvelta hækkar aðra vikuna í röð og nemur nú um 1.220 milljónum króna. Í síðustu viku fór fjögurra vikna meðalvelta í fyrsta skipti yfir milljarð í fjórar vikur. Mest hefur fjögurra vikna meðalvelta verið tæpir 1,3 milljarðar á þessu ári en það var um miðjan apríl.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú lækkað um tæp 50% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 58% milli ára sem ætti að gefa lesendum nokkra hugmynd um það hversu mikið velta á fasteignamarkaði hefur dregist saman á s.l. tveimur árum.

Tólf vikna meðalvelta hækkar örlítið á milli vikna, fjórðu vikuna í röð, nú um 26 milljónir króna, og nemur nú 1.145 milljónum króna.

Tólf vikna meðalvelta hefur nú dregist saman um 51% milli ára en hafði á sama tíma í fyrra dregist saman um 64% milli ára.

Ársbreyting á vikuveltu hefur dregist saman 46%. Rétt er þó að hafa í huga að velta á fasteignamarkaði getur sveiflast nokkuð milli vikna og því er réttara að skoða fleiri vikur saman líkt og gert er hér að ofan.

Til gamans má þó skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er í dag 1.270 milljónir króna, og hefur lækkað jafnt og þétt s.l. 19 vikur, samanborið við 3.487 milljónir króna á sama tíma í fyrra og hefur því lækkað um 64% milli ára. Á sama tíma í fyrra hafði hún lækkað um 33% milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 47 kaupsamningum þinglýst í vikunni en 34 samningum í vikunni þar á undan. Alls hefur 35 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku á þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning lækkar milli vikna, nam 26,3 milljónum króna í vikunni, samanborið við 43,8 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú 32,8 milljónir króna.