Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu nam í síðustu viku 1.232 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands en í vikunni á undan nam veltan 927 milljónum króna og því eykst veltan um 33% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta hækkar lítillega á milli vikna og nemur nú 1.016 milljónum króna en í þar síðustu viku fór fjögurra vikna meðalvelta í fyrsta skipti undir milljarð síðan um miðjan ágúst. Meðalvelta á viku var um 1.360 milljónir króna á árinu 2009.

Fjögurra vikna meðalvelta náði hámarki, 3.342 milljónum króna um miðjan desember og hafði þá ekki verið hærri síðan í mars 2008. Reyndar voru fór velta tvisvar yfir 4 og 5 milljarða króna á einni viku síðustu vikurnar fyrir jól sem setti fjögurra vikna meðalveltu nokkuð úr samhengi miðað við síðasta hálfa annað árið eða svo. Þá hefur fjögurra vikna meðalvelta nú lækkað um helming á fimm vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú hækkað um 24% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 68% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta hreyfist lítið á milli vikna og nemur nú  1.841 milljón króna. Um miðjan desember hafði 12 vikna meðalvelta ekki verið hærri í 12 mánuði þegar hún nam 2.055 milljónum króna.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er nú 1.378 milljónir króna. Fyrir ári síðan nam 12 mánaða meðalveltan 1.938 milljónum króna og hefur því dregist saman um 29% á milli ára. Þá má til gamans geta þess að um miðjan janúar í fyrra fór 12 mánaða meðalvelta í fyrsta skipti undir 2 milljarða frá því febrúar 2003.

Í þessari viku:

Alls var 48 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 42 samninga í vikunni þar á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári og 38 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning nam í vikunni 25,7 milljónum króna, samanborið við 22 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin tæpum 29 milljónum króna.