Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst lítillega í síðustu viku og nam rúmum 1,1 milljarði króna. Veltan jókst því um 26% milli vikna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands (áður Fasteignamat ríkisins).

Veltan í vikunni þar á undan nam rétt tæpum 900 milljónum króna en vikuveltan á fasteignamarkaði hefur aðeins tvisvar farið yfir milljarð síðustu níu vikur.

Meðalvelta á viku á síðasta ári var rúmir 2,1 milljarðar. Þá er meðalvelta síðustu fjórar vikur um 970 milljónir en meðalvelta frá áramótum er um 895 milljónir á viku.

Um miðjan janúar fór 12 vikna meðalvelta undir milljarð króna í fyrsta skipti í tæpan áratug en nú er 12 vikna meðalvelta um 915 milljónir króna.

Á myndinni hér að ofan má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára sem hefur minnkað um 66% milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 39 í síðustu viku en 34 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali var 66 samningum þinglýst á viku á síðasta ári en frá áramótum hefur 30 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku.

Meðalupphæð á hvern samning var í vikunni 28,9 milljónir króna og hækkar um 2,6 milljónir milli vikna. Það er rétt undir meðaltali en meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári voru tæpar 32 milljón krónur en hefur verið 29,4 milljónir frá áramótum.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 68% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.