Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst umtalsvert á milli vikna í síðustu viku eftir að hafa lækkað í fimm vikur þar á undan.

Þannig nam veltan í síðustu viku 2.325 milljónum króna samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands, samanborið við 1.392 milljónir króna veltu í síðustu viku og jókst því um 675 á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta jókst lítillega á milli vikna en í vikunni þar á undan hafði fjögurra vikna meðalvelta farið í fyrsta sinn í fimm vikur undir 2 milljarða króna. Þannig nemur fjögurra vikna meðalvelta í síðustu viku 1.883 milljónum króna, samanborið við 1.862 milljónir í vikunni á undan.

Fjögurra vikna meðalvelta  hefur nú lækkað um 400 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur hækkað um 41% á milli ára, en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta dregist saman um 25% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta jókst lítillega á milli vikna í síðustu viku eða um 85 milljónir króna, og nemur nú 2.000 milljónum króna. Tólf vikna meðalvelta hefur frá því í lok síðasta árs verið undir 2 milljörðum króna.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.653 milljónir króna á viku og hefur aukist um 43% á milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 86 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 55 samninga í vikunni á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 55 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning hækkaði á milli vikna í síðustu viku og nam 27 milljónum króna, samanborið við 25,3 milljónir króna í síðustu viku. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 28,6 milljónum króna og hefur því lækkað nokkuð.

Meðaltal síðustu 12 vikna er þó 28,6 milljónir króna.