Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst töluvert á milli vikna í nýliðinni viku. Þannig nam veltan í vikunni 1.692 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands, samanborið við 1.168 milljónir króna veltu í vikunni á undan og jókst því um 45% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta hækkar í kjölfarið á milli vikna, eftir að hafa lækkar í fjórar vikur þar á undan, og nemur nú 1.254 milljónum króna, samanborið við 1.158 milljónir í vikunni á undan. Fjögurra vikna meðalvelta hefur þó lækkað um tæpar 80 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur hækkað um 14% á milli ára, en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 46% milli ára. Í byrjun apríl lækkaði fjögurra vikna meðalvelta í fyrsta sinn á milli ára síðan í byrjun nóvember sl.

Tólf vikna meðalvelta eykst einnig á milli vikna eða um 38 milljónir króna, og nemur 1.415 milljónum króna.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.4334 milljónir króna á viku. Fyrir ári síðan nam 12 mánaða meðalveltan 1.589 milljónum króna og hefur því dregist saman um 10% á milli ára. Þá má geta þess að um miðjan janúar í fyrra fór 12 mánaða meðalvelta í fyrsta skipti undir 2 milljarða frá því febrúar 2003.

Í síðustu viku:

Alls var 56 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 40 samninga í vikunni á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 45 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning hækkar á milli vikna og nam í vikunni 30,2 milljónum króna, samanborið við 29,2 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 29,7  milljónum króna.