Fasteignasalan Heimaey ehf. hefur keypt Domus fasteignasölu í Vestmannaeyjum og mun sameina rekstur Domus og sinn rekstur.
Ástæða þess að Domus fasteignasala er seld eru breyttar áherslur hjá rekstraraðilum Domus í Vestmannaeyjum, sem munu í framtíðinni einbeita sér að lögmannsráðgjöf og innheimtustarfsemi.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu um málið.
Fasteignasalan Heimaey ehf. hefur verið starfandi síðan í september 2007.