Stjórn Félags atvinnurekenda (FA) hefur skorað á sveitarfélög að lækka fasteignaskatt á atvinnuhúsnæði við gerð fjárhagsáætlana fyrir næsta ár til að bregðast við miklum hækkunum fasteignamats fyrir árið 2022. Frá árinu 2015 hefur fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði hækkað um 68%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FA .

„Samkvæmt nýbirtu fasteignamati er hækkun mats atvinnuhúsnæðis 6,2% á landinu öllu; um 5,4% á höfuðborgarsvæðinu en um 8% á landsbyggðinni. Að óbreyttu þýðir þetta samsvarandi skattahækkun á fyrirtækin. FA bendir á að frá því að núverandi tekjumatsaðferð var tekin upp við útreikning fasteignamats atvinnuhúsnæðis fyrir árið 2015 og til ársins 2020 hefur álagður fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði á landinu hækkað úr tæplega 17 milljörðum króna í um 28,5 milljarða. Skattbyrði fyrirtækjanna hefur á þessum skamma tíma þyngst um 11,5 milljarða eða tæplega 68%, þrátt fyrir lækkanir einstaka sveitarfélaga á skattprósentu," segir í tilkynningunni.

Þá er bent að aukin þynging á skattbyrði fyrirtækjanna vegna húsnæðis dragi mátt úr út atvinnulífinu og seinki efnahagsbatanum eftir heimsfaraldurinn. Þá skerðir skattlagningin einnig getu fyrirtækjanna til að standa undir launagreiðslum sem var samið um í lífskjarasamningnum en þær eru grundvöllur útsvarstekna sveitarfélaganna.

„Stjórn FA telur að hér verði hvert og eitt sveitarfélag að sýna ábyrgð og gera breytingar á sinni álagningarprósentu þannig að hækkanir á fasteignasköttum skaði ekki atvinnulífið í landinu meira en orðið er. FA skorar jafnframt á sveitarfélögin að taka upp viðræður hið fyrsta við ríkisvaldið um breytingar á þessu fráleita kerfi þar sem skattgreiðslur af húsnæði eru beintengdar við þróun fasteignamats og taka þannig sjálfkrafa hækkunum, án nokkurs tillits til gengis atvinnulífsins að öðru leyti," segir í tilkynningunni.