Bæjarstjórn Seltjarnarness samþykkti á fundi sínum í gær tillögu meirihluta Sjálfstæðismanna um að lækka álögur á fasteignaeigendur til að vega á móti miklum hækkunum á fasteignamati á íbúðarhúsnæði í bænum. Fasteignaskattur mun lækka um 11%, lóðarleiga um tæplega 47% og vatnsskattur um 13%. Áætlað er að tekjur bæjarins lækki um tæpar 25 milljónir króna við þessa breytingu frá því sem ella hefði orðið.

Eins og fram hefur komið í fréttum hefur verðmæti fasteigna á Seltjarnarnesi hækkað verulega síðustu misseri og um áramót tók gildi nýtt fasteignamat frá Fasteignamati Ríkisins sem kveður m.a. á um 30% hækkun sérbýlis á Seltjarnarnesi en sú breyting hefur því veruleg áhrif á útgjöld heimilanna vegna fasteignagjalda eins og annarsstaðar á höfuðborgarsvæðinu. Meðaltalshækkun fasteignamats á Seltjarnarnesi nemur tæpum 18% á milli ára.

Í greinargerð meirihluta með tillögunni sagði m.a. að öðru óbreyttu hefðu skatttekjur bæjarins af fasteignagjöldum aukist talsvert umfram þær forsendur sem lágu til grundvallar nýsamþykktri fjárhagsáætlun bæjarins. Í ljósi þeirrar áherslu sem Sjálfstæðismenn á Seltjarnarnesi hafi lagt á ábyrga fjármálastjórn bæjarins og lágar álögur taldi meirihlutinn að koma eigi til móts við íbúa og skattgreiðendur á Seltjarnarnesi með lækkun ofangreindra gjaldastuðla þannig að tekjur bæjarins af fasteignagjöldum verði í samræmi við fjárhagsáætlun bæjarins.

Álagningarstuðull fasteignaskatts lækkar við þessa samþykkt úr 0,36% í 0,32%, lóðarleiga úr 0,75% í 0,35% og vatnsskattur úr 0,15% í 0,13%. Fasteignatengdar álögur á Seltjarnarnesi hafa um langt skeið verið með þeim lægstu á höfuðborgarsvæðinu og leggur Seltjarnarnesbær t.d. ekki á holræsagjald, eitt sveitarfélaga á landinu.
Hækkun fasteignamats leiðir til hærri fasteignagjalda á íbúa en reiknað var með í fjárhagsáætlun bæjarsjóðs fyrir árið 2005. Með samþykkt bæjarstjórnarinnar falla út áhrif hækkunar fasteignamatsins umfram forsendur fjárhagsáætlunar 2005.