155 einkahlutafélög voru skráð í síðasta mánuði. Mest voru það félög sem stunda fasteignaviðskipti. Til samanburðar voru 143 einkahlutafélög skráð í október í fyrra. Á fyrstu tíu mánuðum ársins eru nýskráningar 1.473 talsins sem er 5% aukning á milli ára þegar 1.398 fyrirtæki voru skráð, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.
Á sama tíma og nýskráningum fjölgaði á milli ára fækkaði gjaldþrotum verulega á milli ára. Í síðasta mánuði voru 118 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta. Flest voru þau í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Samkvæmt því hafa 910 fyrirtæki farið í þrot á fyrstu tíu mánuðum ársins. Það er 31% fækkun á milli ára en á fyrstu tíu mánuðum ársins fóru 1.317 fyrirtæki í þrot. Sama máli gegnir þar og í október því fyrirtækin voru flest í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.