Fasteignauppboðum í Bandaríkjunum fjölgaði um 9% í júlí frá því í mánuðinum á undan, en þetta er jafnframt 93% aukning frá því á sama tíma árið 2006. Í Nevada ríki fjölgaði fasteignauppboðum sjöunda mánuðinn í röð; ein af hverjum tvö hundruð fasteignum þar sem eigandi veðsins er sviptur rétti á fasteigninni sökum vanefnda á veðskuld er í Nevada.