Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við HÍ segir það vera ákall til verktaka um að byggja fleiri íbúðir að fasteignaverð sem hlutfall af byggingarkostnaði nálgist nú sögulegar hæðir.

Á morgun mun Ásgeir ræða stöðuna á fasteignamarkaði á hádegisverðarfundi Félags viðskipta- og hagfræðinga, en Ásgeir bendir á að framleiðslugeta í byggingariðnaði hafi skroppið saman eftir fall fjármálakerfisins árið 2008.

Vart lífsmark til ársins 2014

Það hafi gerst á sama tíma og stórir árgangar ungs fólks hafi komið inn á fasteignamarkaðinn að því er fram kemur í Fréttablaðinu . Á höfuðborgarsvæðinu hafi á árunum fyrir hrun verið byggðar hátt í 2.500 íbúðir þó 1.000 til 1.500 íbúðir hafi verið vanalegra, en í kjölfar hrunsins hafi orðið nær algert hlé á frekari nýbyggingum.

Segir Ásgeir að vart hafi verið lífsmark á markaðnum allt fram til ársins 2014.„Það gekk mun hægar að blása lífi í byggingariðnaðinn en menn bjuggust við,“ segir Ásgeir. „Mörg verktakafyrirtæki fóru auðvitað illa út úr hruninu og þá hefur athyglin einkum beinst að hótelframkvæmdum, en ekki uppbyggingu íbúða. Það er ástæðan fyrir þessum skorti.“

Verð hækkar með auknum lánum

Ásgeir segir það vera erfitt fyrir stjórnmálamenn að ætla að bjarga málunum, því vandinn sé að framboðið sé ekki nægilegt. „Það er engin lausn að ætla að lána fólki meiri pening til þess að kaupa sér íbúð, eins og gert var á árunum fyrir hrun,“ segir Ásgeir.

„Því ef framboðið eykst ekki mun aukið lánsfjármagn aðeins leiða til þess að fleiri peningar elta sama fjölda íbúða og verðið hækkar þá bara meira.“

Lítið ef nokkuð svigrúm til launahækkana

Ásgeir segir að nú sé mikill hvati fyrir verktaka að byggja fleiri íbúðir vegna þess hve fasteignaverð er hátt, á mælikvarða byggingarkostnaðar.„Engu að síður er mikilvægt að verktakar geri sér ekki vonir um að fasteignaverð haldi áfram að hækka,“ segir Ásgeir sem segir ekki endilega víst að það gerist.

„Það veltur mikið á launaþróuninni og margir eru nú reynslunni ríkari eftir sveiflur síðustu ára og vilja ekki lenda í því að kaupa á toppnum. Um leið og hægir á launahækkunum mun hægja á fasteignaverðshækkunum. Og eins og sakir standa er lítið ef nokkurt svigrúm til launahækkana.“