Á þessu ári hefur fasteignaverð hækkað mun meira í stærri bæjum en í Reykjavík að því er Hagsjá Landsbankans greinir frá og vísar í tölur úr Verðskrá Þjóðskrár Íslands.

„Sé litið á breytinguna frá 2. ársfjórðungi 2016 til sama tíma 2017 hækkaði meðalverð  í Reykjavík um 23% á meðan það hækkaði um 48% í Reykjanesbæ og 24% á Akranesi,“ segir í samantekt bankans. „Það sem af er 3. ársfjórðungi hefur verð hækkað minna í Reykjavík en í hinum bæjunum, en hafa ber í huga að endanlegar tölur eru ekki komnar fyrir 3. ársfjórðung í ár.“

Mest hækkun í Árborg og Reykjanesbæ

Ef hækkun fasteignaverðs er skoðuð frá 1. ársfjórðungi ársins 2015 sést að hún hefur verið nokkuð svipuð, en mest í Árborg og Reykjanesbæ. Segja þeir skýringuna þó liggja í því að verð þar hafi tekið seinna að hækka en í hinum bæjunum. Virðist sem minni verðhækkanir hafi verið upp á síðkastið í Reykjavík og Akureyri heildur en í Árborg, Akranesi og Reykjanesbæ.

Hins vegar er fermetraverð á eignum miklu hærra í Reykjavík en í hinum bæjunum fjórum. „Sé vegið meðaltal viðskipta á fjölbýli og sérbýli notað sést að fermetraverð í Reykjavík var um 430 þúsund krónur á 2. ársfjórðungi 2016 á meðan það var í kringum 240 þúsund krónur á Akranesi og í Árborg.

Fermetraverðið á Akranesi var því 56% af því sem það var í Reykjavík á 2. ársfjórðungi 2017 og 63% á Akureyri sem kemst næst Reykjavík,“ segir í samantektinni. „Sé fjölbýli og sérbýli skoðað hvort um sig kemur í ljós að sérbýli hefur hækkað meira en fjölbýli alls staðar nema á Akranesi. Hækkanir eru svipaðar á fjölbýli og sérbýli í Reykjavík og Árborg, en annars staðar er munurinn meiri.“