Lánasjóður sveitarfélaga (LSS) var með skuldabréfaútboð í flokki LSS150224 núna fyrir helgina, eða þann 30. sept. 2011.

Alls bárust tilboð að nafnvirði 1.396 milljónir króna á bilinu 3,52% - 3,85%.  Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 255 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 3,56%.

Útistandandi fyrir voru tæpir 26,7 milljarðar króna. Heildarstærð flokksins er nú rúmlega 26,9 milljarðar króna.