Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokki LSS150224 þann 9. október 2009.  Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að alls bárust tilboð að nafnvirði 3.195 milljónir króna á bilinu 5,4% - 5,8%.

Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 625 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 5,45%.  Útistandandi fyrir voru ISK 13.840 milljónir króna en heildarstærð flokksins er nú 14.265 milljónir króna.