Tekjur Faxaflóahafna sf. lækka á milli ára um 12.5% en rekstrargjöld lækka einnig.  Heildar tekjur Faxaflóahafna sf. voru 2,3 milljarðar kr. en rekstrargjöld 2 milljarðar.   Ársreikningur Faxaflóahafna sf. vegna ársins 2009 liggur nú fyrir.  Hagnaður af rekstri nam 103.9 milljónum króna sem er umfrám áætlanir. Ársreikningurinn ber hins vegar augljós merki samdráttar og erfiðrar stöðu atvinnulífsins segir í frétt á vef Faxaflóahafna.

Tekjur Faxaflóahafna sf. af vörugjöldum voru alls 749,9 milljónum króna en lækka á milli ára um 176,3 milljónir króna eða um 18,5%.  Tekjur af eignum voru 782,9 milljónir króna og hækka um 74.6 milljónir kr.  Aflagjöld voru 184,5 milljónir kr. og hækka umtalsvert milli ára eða um 69,5 milljónir kr. sem m.a. skýrist af lágu gengi íslensku krónunnar.

Rekstrargjöd voru 2 milljarðar kr. og lækka að krónutölu á milli ára um 196,3 milljónir kr., en ef tekið er tillit til óreglulegra útgjalda á árinu 2008 þá er rekstrarkostnaður á milli áranna 2008 og 2009 svipaður.  Á árinu 2009 var gripið til ákveðinna aðhaldsaðgerða sem m.a. hafa skilað hagræðingu í rekstrinum.

Skuldir lækka

Heildar skuldir Faxaflóahafna sf. í árslok 2008 voru 2,2 milljarðar kr. og lækkuðu á milli ára um 182.4 milljónir kr. sem er 7,8% lækkun skulda.  Handbært fé frá rekstri var 848,3 milljónir kr. en handbært fé lækkaði um 222,2 milljónir kr. og var í árslok 2008 alls 388,3 milljónir kr.

Þrátt fyrir að niðurstaða ársreikningsins sé ásættanleg er útlitið á árinu 2010 svipað og á árinu 2009 þ.e. að óvissa er framundan varðandi vöruflutninga, verðlagsþróun og almenn umsvif í efnahagslífinu.