Hluthafafundur Straums-Burðaráss sumarið 2006 var stormasamur, þrátt fyrir að eina mál á dagskrá hafi verið kosning stjórnar. Víglundur Þorsteinsson og Jóhann Páll Símonarson vildu leggja fram spurningar til fráfarandi stjórnar, en fengu ekki. Meðal þeirra sem sátu fundinn voru þeir Magnús Kristinsson, Gunnlaugur Sigmundsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Jafet Ólafsson.

Myndin birtist í Morgunblaðinu 20. júlí 2006.