Feðgarnir í Forlaginu, Jóhann Páll Valdimarsson og Egill Örn Jóhannsson, eru menn ársins í atvinnulífinu á Íslandi árið 2012, að mati Frjálsrar verslunar. Feðgarnir hljóta verðlaunin fyrir arðbæra bókaútgáfu til góðs fyrir íslenskt samfélag og menningu, stórhug og fagmennsku.

Forlagið hefur frá því það var stofnað árið 2001 verið rekið með hagnaði. Undanfarin árin hefur félagið skilað 10 til 15% hagnaði eftir skatta af veltu.

Það velti tæpum 1,3 milljörðum króna á síðasta ári og hagnaðist um 104 milljónir eftir skatta. Eigið féð var tæplega 1,1 milljarður króna og hefur byggst upp jafnt og þétt. Heildareignir Forlagsins voru um 1,7 milljarðar króna um síðustu áramót og langtímaskuldir litlar.

Forlagið gefur út bækur undir merkjum JPV, Máls og menningar, Vöku-Helgafells og Iðunnar og rekur þess utan metnaðarfulla kortaútgáfu. Þá er Heimskringla háskólaútgáfa einnig innan vébanda félagsins.