Maður sem fékk fyrir mistök senda frumútgáfu af iPhone 6 símanum hefur sett símann í sölu á vefsíðunni ebay. Hæsta boð stendur nú í 61.600 bandaríkjadollurunum, en það jafngildir um 7,5 milljónum íslenskra króna. Þrír dagar eru eftir af uppboðstímanum.

Maðurinn greinir frá því að hann hafi fengið símann afhentan fyrir mistök frá Verizon og Apple láti slíka síma aldrei úr sinni umsjá. Hann geti hins vegar ekki ábyrgst að hægt sé að hringja úr símanum eða taka á hann myndir. Hægt er að bjóða í símann hér .