Skiptum er lokið í HDH Invest sem er eignarhaldsfélag í eigu Agnars Hanssonar. Lýstar kröfur nema 1,4 milljörðum auk áfallinna vaxta og kostnaðar eftir úrskurðardag gjaldþrotaskipta en engar eignir fundust í búinu. Agnar er fyrrverandi forstjóri Icebank og núverandi forstöðumaður Arctica Finance. Skiptastjóri var Börkur Hrafnsson, hdl.