Bandaríska lyfjafyrirtækið Watson - nú Actavis - hefur gengið frá lokagreiðslu vegna kaupanna á Actavis fyrir ári. Árangurstengd greiðsla vegna kaupanna verður greidd að fullu, alls 5,5 milljónir bréfa í hinu sameinaða félagi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Novator. Virði þessara 5,5 milljón hluta er um 576 milljónir dollara, um 66 milljarðar króna, ef miðað er við gengi Actavis í dag á markaði.

Félag Björgólfs á bréf fyrir 60 milljarða

Actavis er nú skráð í kauphöllinni í New York og er markaðsvirði félagsins rúmir 13,3 milljarðar bandaríkjadollara, sem samsvarar um 1.562 milljörðum króna. NDS sem er að stærstum hluta í eigu Novators, fjárfestingarfélags Björgólfs Thors Björgólfssonar, er nú 6. stærsti hluthafi félagsins. Eignarhlutur félagsins er nú virði um 520 milljón dollara, eða rúmlega 60 milljarðar króna.

Þegar gengið var frá kaupunum í apríl í fyrra var greint frá því að lunginn af um 700 milljarða kaupverði færi í að greiða niður skuldir við Deutsche bank og aðrar lánastofnanir.

Eins og fram kom í apríl í fyrra, þegar Watson festi kaup á Actavis, kaus Björgólfur Thor að fá stóran hlut greiðslu sinnar í formi hlutabréfa og var endanlegur fjöldi hluta háður afkomu Actavis. Nú liggur fyrir að um fulla greiðslu er að ræða og hafa hlutirnir verið gefnir út. Hluti bréfanna rennur til tveggja íslenskra banka, Landsbankans og ALMC og meðfjárfesta Novators eftir því sem fram kemur í tilkynningu Novator.

Lánadrottnar eiga áfram kröfur á Novator

Björgólfur Thor hefur verið hluthafi í Actavis í tæp 14 ár. „Ég hef alltaf haft trú á fyrirtækinu, allt frá fyrsta degi þrátt fyrir mikla erfiðleika á köflum þar sem við sáum mikil verðmæti tapast. Núna er Actavis eitt öflugasta samheitalyfjafyrirtæki heims og ég er mjög ánægður að halda góðum eignarhlut," segir Björgólfur Thor. „Ég lít enn á eign mína sem langtímafjárfestingu og ég er sannfærður um að fyrirtækið muni eflast, enda í höndum mjög hæfra stjórnenda og starfsmanna úr röðum beggja hinna sameinuðu félaga."

Lánardrottnar Björgólfs Thors munu áfram eiga kröfur á Novator í samræmi við skuldauppgjör hans í júlí 2010. Það skuldauppgjör er nú langt komið.

Björgólfur Thor sinnir áfram fjárfestingum Novators víðsvegar um heim. Þar má nefna Play í Póllandi, sem er fjórða stærsta fjarskiptafyrirtækið þar í landi með hátt í 10 milljón viðskiptavini. Novator er stofnandi fyrirtækisins, byggði það frá grunni og er nú leiðandi hluthafi. Þá mun hann áfram hlúa að fjárfestingum Novators á Íslandi, en það eru tölvuleikjaframleiðandinn CCP, fjarskiptafyrirtækið Nova og gagnaverið Verne.