Containerships í Finnlandi, sem að hluta til er í eigu Eimskip, hefur yfirtekið  rekstur á fyrirtækinu Contaz Line sem er lítið skipafélag með starfsemi í Miðjarðarhafinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip en þar kemur þó fram að yfirtakan hefur ekki nein bein fjárhagsleg áhrif á  móðurfélag Eimskip en vegna eignarhalds á Containerships er rekstur þess félags að fullu aðskilinn frá rekstri Eimskip.