Matthew Williamson hyggst opna verslun í New York, en Baugur á 26% hlut í Matthe Williamson. Verslunin verður 760 fermetrar að stærð og verður fyrsta búð Matthew í Bandaríkjunum. Stefnt er að því að hún opni snemma á næsta ári.

Hátískufatnaður Matthew Williamson er nú seldur í 170 verslunum um allan heim, að því er kemur fram á vefsíðu Baugs.