Stamford Partners, sem er að helmingi í eigu Straums fjárfestingabanka[ STRB ], veitti ráðgjöf við sölu á hlut Cadbury Schweppes á þeim hluta starfsemi sinnar sem hefur verið rekin undir merkjum Monkhill. Kaupandinn er Tangerine Confectionary Ltd. og nemur kaupverðið 58 milljónum punda, eða sem nemur um 7,5 milljörðum króna. Cadbury Schweppes er stærsti sælgætisframleiðandi heims, en það var hins vegar Tangerine sem leitaði ráðgjafar hjá Stamford Partners. Félagið veitti jafnframt ráðgjöf við kaup Tangerine á sælgætishluta Burtons, sem jók veltu félagsins mikið.

Stamford Partners sérhæfir sig í ráðgjafarþjónustu við evrópska matvæla- og drykkjarframleiðendur, og hefur byggt upp sterk tengsl við leiðandi fyrirtæki á þessu sviði í Evrópu.