Miðengi ehf., eignarhaldsfélag Íslandsbanka, fer nú með 71% eignarhlut í félögunum Bláfugli og IG Invest í gegnum eignarhald sitt á SPW ehf. en Bláfugl og IG Invest eru að fullu í eigu SPW.  Félögin voru áður hluti af samstæðu Icelandair Group.  Glitnir Banki er eigandi 29% hlutafjár í SPW ehf.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

„Breytingin á eignarhaldi kemur til í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar Íslandsbanka og Glitnis á Icelandair Group

IG Invest heldur utan um fjárfestingar í fjórum 787 vélum frá Boeing.

Bláfugl er með starfssemi á sviði vöruflutninga og er með leigu á fragtflugvélum. Félagið er með höfuðstöðvar á Íslandi og hefur verið starfandi frá árinu 1994. Áttatíu manns starfa hjá Bláfugli.

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær eignarhlutirnir verða settir í söluferli.

Nýja stjórn Bláfugls ehf. skipa:

Gylfi Árnason, fyrir Miðengi

Ragnhildur Ásmundsdóttir, fyrir Miðengi

Helgi Hólmar Ófeigsson, fyrir Glitni Banka

Forstjóri Bláfugls er Skúli Skúlason.“