Eignarhaldsfélag Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Þú Blásól ehf., var úrskurðað gjaldþrota með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur þann 20. maí síðastliðinn, en þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu.

Félagið komst í fréttir árið 2010 þegar skiptastjóri þrotabús Fons, sem áður var í eigu Pálma Haraldssonar, fór fram á riftun á lánveitingu til félagsins að fjárhæð einum milljarði króna, en fjárhæðin var greidd beint inn á bankareikning Jóns Ásgeirs. Taldi skiptastjórinn að um gjafagerning hefði verið að ræða.

Pálmi Haraldsson sendi hins vegar frá sér yfirlýsingu í kjölfarið þar sem hann hélt því fram að lánveitingin hefði falið í sér fjárfestingarsamning.