Sigrún Kjartansdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi en félagið hefur það hlutverk að efla fagmennsku mannauðsstjórnunar í þágu íslensks atvinnulífs.

Uppruna félagsins má rekja til klúbbs starfsmannastjóra sem stofnaður var á tíunda áratugnum sem síðar þróaðist yfir í félag fyrir alla mannauðsstjóra hér á landi.

Frá árinu 2015 hefur félagið verið fagfélag allra þeirra sem starfa sem mannauðsstjórar eða sérfræðingar við mannauðsmál hjá íslenskum fyrirtækjum og stofnunum.

Markmið félagsins er að efla fagmennsku í mannauðsstjórnun á Íslandi með virkri þátttöku í umræðu um mannauðsmál. Félagsmenn eru á þriðja hundrað og fer ört fjölgandi segir í fréttatilkynningu.

Sigrún býr yfir áralangri reynslu af stjórnun og rekstri en hún starfaði lengi sem stjórnandi hjá Íslandsbanka og síðar hjá öðrum fyrirtækjum. Sigrún hefur umfangsmikla reynslu af stjórnun mannauðs í gegnum þau stjórnendahlutverk sem hún hefur sinnt, auk þess hefur hún mikla reynslu af markaðs- og sölumálum, verkefnastjórnun og viðburðarstjórnun.

Hún er viðskiptafræðingur að mennt og er með meistarapróf í mannauðsstjórnun og stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands.

Framkvæmdastjóri sér um daglegan rekstur félagsins og vinnur að eflingu þess í samvinnu við stjórn félagsins.

„Við í stjórn Mannauðs erum virkilega ánægð með að vera búin að fá Sigrúnu í starf framkvæmdastjóra en hún hefur gríðarlega reynslu og þekkingu í þeim málaflokki sem félagsmenn okkar vinna í“ segir Brynjar Már Brynjólfsson formaður félagsins.

Á aðalfundi Mannauðs var ný stjórn félagsins einnig kosin en hana skipa:

  • Brynjar Már Brynjólfsson, verkefnastjóri hjá Origo er formaður stjórnar
  • Harpa Víðisdóttir, mannauðsstjóri Varðar er varaformaður stjórnar
  • Margrét Jónsdóttir, mannauðsstjóri Mountain Guides er gjaldkeri stjórnar
  • Hafsteinn Bragason, mannauðsstjóri Íslandsbanka
  • Ragna Margrét Norðdahl mannauðsstjóri Símans er meðstjórnandi
  • Ásta Bjarnadóttir framkvæmdastjóri mannauðs á Landspítalanum er meðstjórnandi