Félagsbústaðir, sem er hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar til þess ætlað að eiga og reka félagslegt leiguhúsnæði sem úthlutað er af Velferðarsvið Reykjavíkurborgar, á og rekur 1934 almennar leiguíbúðir. Auk þess á félagið 379 þjónustuíbúðir fyrir aldraða ásamt 137 litlum íbúðum í sambýlum fyrir fatlað fólk, en saman gerir þetta 2.450 íbúðir í Reykjavík.

Á fyrstu sex mánuðum ársins jukust tekjur félagsins um 8,2% frá sama tímabili í fyrra, en í fréttatilkynningu frá félaginu vegna árshlutareikningsins segir að tekjuaukningin hafi komið aðallega til vegna verðlagshækkunar leigu og stækkunar eignasafns.

Námu tekjurnar 1.757 milljónum króna, en rekstrargjöldin á sama tímabili námu 925 milljónum króna, sem er hækkun milli ára um 8,3%. Þar af hækkaði fasteigna- og brunabótaiðgjöld mest, eða um 9,6%, en rekstrarkostnaður fasteigna jókst um 5,6% og framkvæmdir um 6,2%.

Rekstrarhagnaður félagsins fyrir vaxtagjöld, verðbætur lána, og matsbreytingu fjárfestingareigna jókst milli ára um 8%, úr 771 milljón árið 2016 í 833 milljónir króna í ár. Hrein vaxtagjöld námu 581 milljónum króna og jukust um 14,9% milli tímabila, vaxtaþekja rekstrarhagnaðar tímabilsins í ár var 1,53 miðað við 1,55 sama tímabil á fyrra ári.

Rekstrarafkoma Félagsbústaða hf. fyrir verðlagsbreytingar lána og matsbreytingu eigna nam 289 milljónum króna á tímabilinu miðað við 269 milljónir króna fyrir sama tímabil 2016 sem er 7,5% hækkun hagnaðar. Verðbreyting lána nam samtals 352 milljónum króna á tímabilinu.

Mestu munar um matsbreytingu fasteigna

Við mat á eignum Félagsbústaða til útleigu er stuðst við fasteignamat sem Þjóðskrá Íslands reiknar og tekur gildi í upphafi árs 2018 (verðmæti m.v. feb 2017), að teknu tilliti til 7,2% hækkunar á vísitölu íbúðaverðs í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu frá febrúar 2017 til loka tímabilsins. Matsbreyting fjárfestingaeigna félagsins nam 7.721 milljónum króna þann 30.06. 2017 en var 5.554 milljónir króna fyrir sama tímabil árið 2016.

Hagnaður Félagsbústaða hf. nam 7.657 milljónum króna á tímabilinu en var 5.382 milljónir króna á sama tímabili árið 2016.

Efnahagsreikningur 30.06.2017

Heildareignir Félagsbústaða hf. 30.06.2017 námu 76,3 milljörðum kr. og jukust um 8,5 milljarða kr. á tímabilinu frá áramótum, eða um 12,6%. Matsbreytingar fjárfestingaeigna skýra eignaaukninguna að stærstum hluta. Eigið fé félagsins nam 40,4 milljörðum króna þann 30.06.2017 og jókst um tæpa 7,7 milljarða kr. frá áramótum, eða um 23,4%. Eiginfjárhlutfall var 52,9% þann 30.06.2017 en var 48,3% í árslok 2016.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri nam 265 milljónum króna á tímabilinu 1.1.-30.06. 2017 sem er um tæpum 117 milljónum króna meira en á sama tímabili árið á undan. Fjárfestingar á tímabilinu námu 2.129 milljónum króna miðað við 304 milljónir króna á sama tímabili árið áður.

Fjármögnunarhreyfingar tímabilsins voru tæplega 690 milljónir króna samanborið við rúmlega 157 milljónir króna á sama tímabili árið áður. Á tímabilinu 1.1. – 30.06. 2017 keypti félagið 5 íbúðir.