Stöðugt fleiri frumkvöðlar hefja rekstur fyrirtækja í félagsformi í Danmörku. Þetta er niðurstaða könnunar dönsku ?Erhvervs- og Byggestyrelsen" sem kunngerð var nú í júní. Árið 1996 hófu 14.626 fyrirtæki rekstur í Danmörku og 10% þeirra voru félög. Árið 2001 hófst rekstur 16.447 fyrirtækja og 25% þeirra voru félög. Samkvæmt könnuninni skiptir þetta miklu fyrir framtíð fyrirtækjanna því 6 árum eftir stofnun eru 58% félaga, sameignar- eða hlutafélaga, enn í rekstri en 41% þeirra fyrirtækja sem stofnuð voru sem einkafyrirtæki.

Velta félaganna er líka meiri fyrstu rekstrarárin. Þá sýnir könnunin að fyrirtækjum sem frá upphafi miða á útflutning gengur betur til lengri tíma litið.

Byggt á frétt á heimasíðu Byggðastofnunar.