Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, sendi í byrjun vikunnar bréf til formanna stjórnmálaflokkana og beindi þeim tilmælum til þeirra að þeir leituðu leiða til að tryggja jafnræði kynjanna við uppröðun á framboðslistum fyrir komandi alþingiskosningar þannig að hlutur kvenna og karla verði sem jafnastur á Alþingi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu.

„Félags- og tryggingamálaráðherra sem jafnframt er ráðherra jafnréttismála leggur ríka áherslu á það hlutverk flokkanna að tryggja konum og körlum jafna hlutdeild í lýðræðislega kjörnum stofnunum samfélagsins,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að búast megi við að efnahagsástandið letji konur fremur en karla til að gefa kost á sér á framboðslista þar sem rannsóknir sýna að þær bera meiri fjölskylduábyrgð en karlar. Versnandi efnahagur heimilanna geti því orðið til þess að færri konur gefi kost á sér en áður.

Þá kom einnig fram í bréfinu að í alþingiskosningunum árið 2003 voru konur 43% frambjóðenda en hlutur þeirra á þingi varð einungis 30,2%. Í alþingiskosningunum árið 2007 voru þær 47% frambjóðenda, en urðu 31,7% þingmanna.

„Líkur hvers kvenframbjóðanda á að ná sæti á Alþingi höfðu þá minnkað frá því sem verið hafði fjórum árum áður,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

„Hlutur kvenna varð mestur eftir kosningarnar 1999 fyrir réttum tíu árum eða 34,9%. Í ljósi þessa er mikilvægt að raða konum í örugg sæti á framboðslistum til jafns við karla.“